Próflok
Kláraði seinna próf annarinnar í dag og er þá búinn með um 2/3 af meistaranámi í tölvunarfræði sem ég stunda með vinnu þessi misseri. Fer á hálfum hraða í gegnum námið, klára 90 einingar á þremur árum í stað eins og hálfs.
Hef tekið þessi námskeið síðustu tvo vetur:
- Dreifð kerfi
- Valin efni (ruslasöfnun, fjölþráðavinnsla með OpenMP, hermun, design patterns)
- Reiknirit, rökfræði og reiknanleiki
- Þýðendur
- Prófun hugbúnaðar
- Viðhald hugbúnaðar
- Forritun ofurtölva A
- Öryggi tölvukerfa
- Tölvugrafík
Næsta vetur tek ég eitt námskeið á haustönn og málstofu auk 30 eininga lokaverkefnis á vorönn.
Þetta er búið að vera skemmtilegt og fróðlegt - ég hef lært heilan helling. Þetta er einnig búið að vera ansi strembið enda hef ég verið í fullri vinnu, hef tekið frídaga í kringum prófin. Námið hefur gengið vel hingað til. Ég veit ekki með próf dagsins, ég var ekki í stuði.
Ætli maður láti þetta svo ekki bara gott heita eftir næst vetur.
Arngrímur Vídalín - 08/05/13 00:10 #
Vel af sér vikið! Þetta er mikil vinna.
Óli Gneisti - 08/05/13 07:10 #
Þú stoppar ekki fyrren þú ert kominn með tvö doktorspróf.
Óli Gneisti - 09/05/13 15:35 #
Ég er reyndar bara með tvær en kannski ætti ég að fara að kynna mig sem Óla M.A. M.A.
Kristín í París - 17/05/13 19:29 #
Glæsilegt. Ég tók námið líka í rólegheitum og var sérlega lengi með lokaverkefnið. Hvílíkt kúl að hafa klárað! Gangi þér vel.