100101
Punktar dagsins:
- Ég fattaði ekki að ég væri búinn að jafna mig í hnénu fyrr en ég meiddi mig aftur í boltanum í dag. Erling moggamaður tæklaði mig. Tæklingin var drengileg en ég fékk smá hnykk á hnéð og finn nú aftur fyrir því þegar ég geng upp stiga eða stend upp af klósettinu. Það er samt gott að ég var búinn að jafna mig, nú þarf ég bara að jafna mig aftur.
- Ég var annars nokkuð góður í boltanum í dag þó ég væri alveg búinn að vera á tímabili.
- Það styttist í prófin. Eitt skilaverkefni eftir í Formlegum málum, ég þarf að fá þokkalega einkunn fyrir það. Ég kemst vonandi yfir vegginn fyrir prófið sem verður 15. des. Tek launalaust frí frá vinnu fyrri hluta desember mánaðar fyrir utan tvo eða þrjá daga.
- Ég ætla rétt að vona að kvenfélagsmenn standi við að taka heljar djamm 17. des.
- 100% vinna + 40% nám er merkilega lýjandi.
- Það hlakkar ekkert í mér þegar trúarleiðtogar eru ásakaðir um kynferðisbrot. Minni fólk á að þó það sé alvarlegt að ásaka menn um svona glæpi er afskaplega sjaldgæft, jafnvel óþekkt, að hópur kvenna ásaki mann um slík brot að ósekju. Það er ekki beinlínis hvetjandi fyrir þær að koma fram ef fólk er þegar farið að gefa í skyn að þær ljúgi.
- Almenna reglan er þessi: Heilagt fólk er ekkert heilagt. Það er bara fólk eins og við hin - brothætt, mistækt fólk sem hefur komið sér í áhrifastöðu sem sumt þeirra misnotar.
- Ég var vakinn með söng í morgun, fékk gjafir.
- Kvöldmatur verður snæddur hjá Austur-Indíafjelaginu.
Athugasemdir
Halldór E. - 23/11/10 17:47 #
Til hamingju með afmælið. Hrikalega ertu gamall.
Ég hef alltaf haldið að ég væri að skrifast á við unga og uppreisnargjarna menntaskólastráka sem ættu eftir að þroskast. :-)
Þórður Ingvarsson - 23/11/10 18:29 #
Til hamingju með daginn gjemle.
Helgi Briem - 26/11/10 14:44 #
Meh. Matti, þú ert greinilega algert bloggbarn.
Hefðirðu hálft vit á við aldraðan ritstjóra mundirðu skipta þessari færslu í 9 færslur og færast þeim mun ofar á gáttinni.