Hrópum hærra
Ef einhver véfengir upphrópanir okkar skulum við hrópa hærra frekar en að meta rökin og endurskoða afstöðu okkar. Grípum allt á lofti sem við heyrum og vörpum því áfram. Efahyggja er púkó, gagnrýnin hugsun þvælist fyrir og rökræða er fyrir einhverja aðra.
Þetta er hið nýja Ísland.
Það er út í hött að gera grín að heimskulegum málflutningi svekktra sjálfstæðismanna og toppa þá svo í framhaldi.
Einn Jónas er miklu meira en nóg.
Athugasemdir
Jón Frímann - 02/01/10 01:24 #
Þetta minnir mig nú á manneskjunar sem vildi ekki heyra mótrök mín við Icesave fyrr í kvöld á facebook, og eyddi því svari út hjá mér. Þegar það gerðist þá sagði ég bless vegna þess að ég vildi ekkert með óheiðarlegt fólk hafa.
Sú skoðun mín stendur.
Jón Frímann - 02/01/10 01:25 #
Þarna á að standa manneskjuna, eintala þ.e.