Minniskortið fannst
Hafið ekki áhyggjur, hörmungum hefur verið afstýrt. Minniskortið fannst og lesarinn með. Lá í sófanum í sjónvarpsstofunni undir lúmsku hvítu A4 blaði. Fjandans ósvífna blað. Ég var búinn að snúa öllu við, líka í sjónvarpsstofunni. Gyða fann þetta að sjálfsögðu. Konur eru klárari að leita en karlar (tja, mín er a.m.k. klárari að leita en ég).
Ég mun taka heilan helling af myndum í kvöld. Vonandi eina sæmilega flugeldamynd.
Athugasemdir