Myndskreyttur bás
Ég fékk Pixla til að prenta tvær myndir fyrir mig í fyrradag. Var bara að prófa mig aðeins áfram og fékk myndirnar í stærðinni 30x20cm.
Myndirnar koma ansi vel út í þessari stærð. Ég nennti ekki að setja þessar í ramma eða láta líma á plötu, festi þær bara með teiknibólum.
Næst ætla ég að prófa að láta prenta í stærðinni 45x30cm. Á einnig eftir að prófa að prenta einhverja mynd ennþá stærri á striga handa Gyðu, hana langar að setja mynd á vegginn á skrifstofunni sinni. Ég verð bara að gera mitt besta til að skreyta fátæklega básinn minn. Þetta er þriðja myndin.
Athugasemdir
Arnold - 29/08/08 19:26 #
Og hvernig líður þér svo með D700? Þú þarft að fara að koma með vísindalega útekt á henni fyrir okkur ;)
Sævar Helgi - 29/08/08 19:59 #
Nákvæmlega!! Hvað á maður eiginlega að þurfa að bíða lengi?