Miðbæjarferð 17. júní
Ég vona að ég hafi ekki brunnið. Þetta var meiri blíðan. Er búinn að bera á mig after sun þar sem ég var of þrjóskur til að setja á mig sólarvörn
Gerðum svosem ekki margt, byrjuðum hjá Brúðubílnum, borguðum alltof mikinn pening svo stelpurnar kæmust í hoppukastala fyrir framan Iðu og fórum svo á Arnarhól og sátum þar. Borðuðum nesti á Austurvelli áður en við fórum heim rétt rúmlega sex.
Hér eru myndir dagsins. Meðal annars önnur mynd af stóra fánamálinu, þar sem fljúgandi geimvera hefur bæst í hópinn.
hildigunnur - 18/06/08 23:05 #
við tímdum ekki (hmm, áttum ekki lausan pening og þeir tóku ekki kort) hoppukastalanum fyrir utan Iðu, við litla hrifningu sonarins. Held ég hefði viljað borga samt, í stað fyrir nær hálftíma röð í ókeypis skátakastalana í Hljómskálagarðinum.
Og ég fékk sólarexem. Súrt.