Naglar
Skömm mín er alger, ég blygðast mín fullkomlega. Fyrirgefið mér, ó gerið það, fyrirgefið mér.
Ég er búinn að setja nagladekkin undir bílinn minn.
Hvítur karlmaður á litlum jeppa á nagladekkjum. Er hægt að komast lægra en það í samfélaginu í dag. Næst þarf ég bara að sparka í gamalmenni og tala illa um biskupinn. Nei, tala illa um gamalmenni og sparka í biskupinn. Helvítis gamalmenni.
Tryggvi R. Jónsson - 14/12/07 13:40 #
Hvítur karlmaður á stórum jeppa á nagladekkjum ?
Matti - 14/12/07 14:59 #
Ég þarf jeppa til að komast upp í bústað, síðustu kílómetrana. Við ákváðum að fjárfesta í jeppa til að komast í bústað - það var leiðinlegt að keyra síðasta spottann í fólksbíl, ómögulegt ef það hafði snjóað.
Nagladekkin fylgdu með bílnum - ég tími ekki að kaupa mér ný vetrardekk þar sem þau kosta hellings pening. Þegar ég þarf að endurnýja kaupi ég ekki nagladekk.