Úthverfalýður fer í bæjarferð
Við skelltum okkur í bæinn í gær. Byrjuðum á því að skutla Vésteini heim en hann mætti tveim vikum of snemma í brunch. Fórum svo í Laugalækjarskóla þar sem ég tók myndir í sjálfboðavinnu fyrir Barnaheill. Veðrið lék ekki beinlínis við okkur, það var frekar dimmt og við fengum smá skúr, en ég náði samt að taka um 600 myndir, vonandi eru 20-30 góðar. Ég má ekki birta myndirnar, þar sem ég var að taka myndir af annarra börnum - en skelli samt inn mynd af mínum stelpum og Einari, ég sleppi því að fá leyfi hjá foreldrum hans :-)
Þvínæst var skundað í miðbæinn á úthverfajeppanum, fórum og fengum okkur að borða á Kaffi París og kíktum svo á Listasafn Íslands, stelpurnar höfðu bara nokkuð gaman að því. Pældu í verkunum og Kolla las heiti þeirra af litlu spjöldunum. Ég var sæmilega hrifinn, þessi Franska sýning (Frelsun litarins) heillaði mig ekki það mikið. Eftir stutt stopp í Iðu sóttum við Ásdísi Birtu í Breiðholtið og kíktum í sunnudagsmat hjá foreldrum mínum í Mosfellsbæ. Þar var boðið upp á spagettí og kjötbollur, rjómabollur í eftirrétt. Ég borðaði yfir mig en át samt miklu minna en ég var vanur fyrir nokkrum vikum. Það var fjölmenni hjá foreldrum mínum og við fórum ekki heim fyrr en rúmlega níu.