Einbreið brú og aðrar myndir
Ég tók mynd af einbreiðri brú. Var dálítið leiður útaf því að fótboltaleikur sem ég hafði glápt á skömmu áður endaði á annan hátt en ég hefði óskað. Þau leiðindi entust ekki lengi.
Mér finnst þessi mynd alveg ágæt, vetrarauðn og einmanaleiki í henni sem mér finnst koma nokkuð vel út.
Hér er þessi sama brú frá öðru sjónarhorni.
Annars bætti ég fjórum myndum inn á síðuna með myndum úr sumarbústaðaferðinni síðustu helgi. Ekki beint merkilegar myndir svosem, en þær segja dálítið mikið um sumarbústaðaferðir fjölskyldunnar. Í bústað lesum við bækur, slökum á, eldum eggjaköku úr afgöngum og förum í pottinn (og ég tek ljósmyndir).
Svona fólk hlýtur að styðja virkjanir, það á jú jeppa!
Athugasemdir