Árbærinn er ekkert svo langt í burtu
Ég sló garðinn fyrir framan og aftan í gær. Nennti ekki að klára að raka, ákvað að geyma það til dagsins í dag. Auðvitað er hellidemba núna.
Við hjónin skelltum okkur út að hjóla í gærkvöldi. Fórum ekki stóran hring en áður en við vissum af vorum við komin að Árbæjarlaug. Ég verð bara að játa að ég fattaði ekki að hún væri svona nálægt, hef ekki áður hjólað þennan spöl. Hef ansi oft keyrt á Fylkisvöllinn en er nokkuð viss um að það tæki ekki lengri tíma að hjóla þessa leið.
Við stoppuðum meðal annars við stífluna, röltum yfir og skoðuðum fuglalífið. Þetta er merkilega stórt gróið svæði inni í miðri borg. Er ekki hægt að planta álveri eða annarri stóriðju þarna :-P
Á heimleiðinni kom í ljós að Gyða hefur verið að hjóla óþarflega langa leið heim í og úr vinnu. Ég sýndi henni "mína leið" sem ég hef reyndar ekkert hjólað á þessu ári. Er að spá í að hjóla í vinnuna í vikunni.