Við munum öll deyja...í boði RÚV
Mánudagskvöld eru enn dómsdagskvöld á RÚV Í kvöld er það eldgos í Yellowstone sem mun drepa okkur öll í framtíðinni. Dimmraddaður þulur útskýrir rólega hvernig 10 þúsund ferkílómetra svæði fer í rúst, í bakgrunni hljómar teknó tónlist og drama til skiptis.
Áður hefur RÚV sýnt myndir þar sem plágur, hnattrökkvun, loftsteinar, flóðbylgjur og jarðskjálfar drepa okkur öll í framtíðinni.
Ég kvíði því helst að þetta gerist allt í einu!
Athugasemdir
Unnur María - 28/11/05 23:06 #
Tjáh... Það er allavega nokkuð ljóst, hvernig sem heimsendi mun bera að, að það verður á mánudegi ;)