Allt í rúst (fyrir framan hús)
Það er verið að taka sameiginlega garðinn fyrir framan hús í gegn þessa dagana. Í leiðinni var ákveðið að endurnýja lagnir fyrir heita og kalda vatnið og einnig fáum við loks aðgang að breiðbandinu.
Ég átti von á smá skurðum en þegar ég kom heim í gærkvöldi blasti þetta við. Búði að grafa allt í tætlur. Lítur ekki vel út núna en þeir ganga vafalaust vel frá þessu.