Styttist í Foo Fighters
Það styttist í Foo Fighters tónleikana í höllinni, ekki laust við að ég sé dáldið spenntur.
Davíð var að hringja í mig rétt í þessu, staddur í höllinni þar sem Foo Fighters voru í hljóðprufu. Ég heyrði ekkert sérlega mikið í Davíð fyrir hávaða, hann heyrði ekkert í mér.
Við ætlum að mæta snemma í röðina til að ná þokkalegum sætum í stúkunni, Davíð býður upp á bjór. Er það dáldið gelgjulegt að drekka bjór í röðinni á leið á tónleika? Mér er nokk sama :-)