kvöldið
Er heima að passa. Fimmtudagskvöld eru fríkvöld hjá Gyðu, hún skellti sér í bíó með Sirrý í kvöld.
Ég gafst upp á að svæfa Ingu Maríu eftir 50 mínútur, þannig að hún er niðri hjá mér hress og kát.
Ég er að fylgjast með leik Liverpool og Auxerre á netinu, keypti mér áskrifa á Liverpool vefnum áður en tímabilið hófst. Það er ekki séns að horfa á leikinn, annað hvort serverinn þeirra eða tenging Íslands við Evrópu er ekki að höndla það.
Í staðin hlusta ég á leikinn og horfi á myndavél sem er beint yfir völlinn. Sé ekki mikið þaðan en þetta er skárra en ekkert.
Liverpool er að vinna 2-0, samanlagt 3-0 í leikjunum tveim.