spennandi
Í dag mæta tignir gestir í CCP. Verst að ég er ekki búinn að raka mig.
Uppfært 13:35
Málið er semsagt að Dorrit Moussaieff mætir hingað á eftir með Indverskum fjárfesti sem vill endilega skoða einhver leikjafyrirtæki. Það er nú ekki mikið úrval af slíku hér á landi, þannig að forsetaskrifstofan hringdi í morgun og óskaði eftir því að fá að kíkja í heimsókn.
Dagsskipunin hér í CCP var að taka til á skrifborðinu áður en gestirnir mæta.
Uppfært 15:09
Dorrit og Indverjinn eru mætt á staðinn. Ég varð þess heiðurs njótandi að fá að vísa þeim leiðina upp á næstu hæð. Veit einhver símann hjá Séð og Heyrt?
Meira síðar.
Athugasemdir
Regin - 19/08/02 13:30 #
Ég þakka kærlega fyrir föstudagskveldið, þetta var afskaplega skemmtilegt.
Regin.