Örvitinn

Nasistinn @svennipopp

Skjáskot frá Twitter
Mannréttindi þarf að verja með valdi og ofbeldi!
Hlutirnir gerast hægt á þessari bloggsíðu enda er ég, eins og flestir bloggarar, afskaplega latur að blogga.

Í framhaldi af samantekt á tvítum @loginTerm, þar sem ég færði rök fyrir því að hann er nasisti, er rétt að skoða félaga hans, nasistann @svennipopp sem notar dulnefið Páll Vilhjálmsson vegna þess að næstum allir þessir nasistar eru nafnlausar gungur. Groyper sem hann notaði áður og sést á skjáskotum hér, er hópur nasista. Afsakið hvað þetta er langt, stutt samantekt er svona: @svennipopp er nasisti.

Byrjum bara á því augljósa. Það slitnar ekki slefan á milli loginTerm og svennipopp.

Skjáskot frá Twitter
svennipopp og loginTerm eru rúnkfélagar
Hér gæti ég endað umfjöllunina og sagt að ég hafi sýnt fram á það sem ég vildi sýna fram á, að svennipop sé nasisti. Í raun þarf ekkert að segja meira. Hafið þó engar áhyggjur, auðvitað skoðum við þessa fígúru örlítið betur.

Þetta finnst honum t.d. tilefni til að setja „like“ við.

Skjáskot frá Twitter
Innleggið er svar við tvíti þar sem svört teiknimyndafígúra var birt.
Rasisminn er ekki miklu "merkilegri" en þetta en svennipopp heldur samt að hann sé gáfaður og birtir gjarnan vísanir í tölfræði eða gögn sem hann skilur augjóslega ekki. Stundum verður þetta átakanlega fyndið eins og þegar hann talaði gegn fjölbreytileika mannkyns með því að vísa í einsleitar landnámshænur. Sú saga hefst með þessu tvíti.
Skjáskot frá Twitter
Páll var að svara tvíti Helgu Völu Helgadóttur sem velti fyrir sér muninum á að bjarga fólki frá Úkraínu og Palestínu

Ég brást við þessu með því að benda á að það væri bara til ein tegund fólks, eitt mannkyn og auðvitað fór svennipopp að skæla, þessir gaurar eru sívælandi.

Skjáskot frá Twitter
Hver var að tala um ritskoðun? Ekki ég!
Vert að taka fram að þegar ég tala um að láta svona rasista ekki komast upp með þennan málflutning er ég að hvetja fólk til að svara rasisma, ekki endilega að hvetja til ritskoðunar. En auðvitað á að ritskoða grófan rasisma.

Áfram hélt hann og póstaði færslu en ég ætla bara að birta fyrri part hennar.

Skjáskot frá Twitter
svennipopp heldur því fram að það sé „á mörkunum“ að ólíkir kynþættir séu sama tegundin
Höfum á hreinu að þeir sem trúa þessu og halda fram eru bullandi rasistar, ekki helgar-rasistar eða diet-rasistar heldur 100% viðbjóðslegir rasistar. Sem betur fer játar hann það einfaldlega.

Skjáskot frá Twitter
Já, þú ert rasisti
Já, þetta er eiginlega skilgreiningin á rasisma.

Þetta er svo fáránlega heimskulegt hjá svennipopp því íslensku landnámshænurnar eru alveg jafn fjölbreyttar í útliti og mannkyn.

Landnámshænur
Mynd frá Bændasamtökum Íslands. Íslenska landnámshænan er hvít, brún, rauð, grá, svört og marglita. Smellið á mynd til að sjá stærri.
Það er erfitt að taka svona greindarskert fólk alvarlega en við skulum halda aðeins áfram því þetta er ekki trúður, heldur nasisti.

svennipopp var mjög duglegur við að setja "like" við statusa sem fjölluðu um yfirburði hvíta kynstofnins og virðist honum sérstaklega í nöp við þeldökkar konur.

Landnámshænur
Þetta krakkar mínir er dæmi um mjög kláran rasisma
Því miður tók Musk út þann möguleika á að sjá við hvað fólk setur "like" sem er heppilegt fyrir rasistana!
Hitler like
Svo setur hann like þegar fólk notar myndir af Hitler

Og bóluefnin
Ekkert óvænt í gangi hér

Góða fólkið
Góða fólkið fær kveðju
Annars finnst mér fólkið sem skilgreinir sig sem andstæðu "góða fólksins" alltaf frekar forvitnilegt. Ég meina, hvenær varð gott vont?

Flóttamenn og greind
svennipopp er of vitlaus til að skilja tölur um greind
Það þarf ekki að lesa mikið til að sjá að þessar tölur koma frá nasistum og standast enga rýni.

Lenya Rún
Hvað er hægt að segja?

flóttafólk
Um flóttafólk
Fólk á flótta er ekki "legitimate class of people"! Þessir rasistar eru með orma í heilanum.

ættjörðin
Barist fyrir ættjörðina

Rasistahægrið
Rasistahægrið!

Ef það lítur út eins og fasismi, labbar eins og fasismi og hljómar eins og fasismi, þá er það svennipopp sem er fasisti, rasisti og bölvaður nasisti.

Það er endalaust til af efni frá þessum blessaða skíthæl og aumingja en ég nenni honum ekki. Þessi færsla er búin að vera til í drögum í marga mánuði en alltaf bætist eitthvað við og eins og ég sagði í annarri færslu, þegar maður er með svona mikið efni í höndunum er erfitt að klára!

Að lokum skulum við renna yfir einhverja af aðdáendum hans.

Athugasemdir



ath. póstfangið birtist ekki á síðunni

má sleppa

(næstum öll html tög virka, einnig er hægt að nota Markdown rithátt)