Grasekkill á gastropub
Gyða stakk af til útlanda í vikunni en grasekkilslífið gengur ágætlega. Ég hef aðallega verið að skutlast með stúlkurnar hingað og þangað eins og gengur.
Fór einn út að borða á Public house gastropub í gærkvöldi meðan stelpurnar voru á sitthvorri æfingunni - keypti svo pítsur handa þeim í kvöldmat. Það var dálítið skrítið að fara aleinn á veitingastað á fimmtudagskvöldi. Maturinn var afskaplega góður. Pantaði þrjá rétti samkvæmt ráðleggingu, tveir hefðu dugað - sérstaklega þar sem nauta short ribs var ansi vel útlátinn réttur. Í kvöld fór Kolla í bíó með vinkonum og ég og Inga María horfðum á The voice. Nú sit ég og glápi á Netflix. Langar að sjá The Babadook en þori ekki að horfa á hana einn! Enemy at the Gates varð fyrir valinu í staðin.
Ég er búinn að vera með harðsperrur í fótum alla vikuna eftir æfingu síðasta sunnudags, hnébeygjur virka! Stefni á aðra fótaæfingu á morgun.
Siggeir F. Ævarsson - 17/10/15 00:52 #
Babadook er góð maður, láttu vaða!