Sunnudagshjólatúr
Skellti mér út að hjóla í stað þess að hanga á netinu. Tæpir 25km á um 80 mínútum. Meðvindur niður í bæ, mótvindur á bakaleiðinni. Ætlaði aðeins lengri leið en mótvindurinn dró úr mér kraftinn. Hangi nú á netinu laus við samviskubit.
View Sunnudagsrúntur in a larger map
Athugasemdir
Jón Magnús - 13/10/13 18:03 #
Hvernig voru brýrnar í Elliðavoginum?