Staða dagsins
Hvað samþykkir þessi stöðuvél? Í raun er auðveldara að sjá fyrst hvað hún samþykkir ekki (q11 er gildrustaða) og snúa því við.
Einn liður í skilaverkefni dagsins. Ég held ég hafi ekki klúðrað því. Kannski er hægt að gera betur. Stöðuvélin var flottari handskrifuð í stílabók, ég þurfti að færa stöðurnar svo allt sæist almennilega þegar ég setti hana upp í tölvu með jflap, náði ekki að sveigja örvarnar í því forriti. Stöðuvélar eru fallegar.
Ásgeir - 17/02/12 18:41 #
Ég veit ekkert hvað þetta er, en mér segir svo hugur að þetta sé örugglega hliðstætt við eitthvað sem ég hef gert undanfarið.
Birgir Baldursson - 17/02/12 19:01 #
Er þetta ekki bara hænisgrein um Bjarna Randver?
Birgir Baldursson - 17/02/12 19:02 #
Hæðnis-
Sindri - 17/02/12 21:36 #
Strengur af lengd 5 sem inniheldur a.m.k. 2 0-stafi?
Sindri - 18/02/12 12:13 #
Ahhh, strengur af lengd 0 mod 5, hver hlutstrengur inniheldur a.m.k. 2 0-stafi. Pældi ekki í færslunum úr lokastöðunni.