Kniplingabrúðkaup
Þrettánda árið segja flestir að sé kniplingabrúðkaup; örfáir kenna það vefnaði eða loðfeldum. #
Ég ætla að kenna þetta brúðkaupsafmæli við hárin á bakinu á mér enda fjölgar þeim í öfugu hlutfalli við ættingja sína á kollinum.
Í dag eru semsagt þrettán ár síðan ég og Gyða giftum okkur. Hér erum við ásamt yngri stelpunum uppi á fjalli síðasta laugardag, óskaplega dugleg.
Athugasemdir
Baddi - 22/08/11 19:51 #
Upp á hvaða hól standið þið? Til hamingju með daginn.