Í skrifstofu á þriðju hæð
Í kvöld sat hann á þriðju hæð aðalbyggingar Háskóla Íslands og dundaði sér í tölvunni á skrifstofu doktorsins. Þar hefur hann verið af og til síðustu mánuði og unnið að málsvörn sinni, leitað á netinu að skrifum sem hann gæti snúið út úr og mistúlkað eins og honum er einum lagið (eins og mörgum öðrum með sama heilkenni!). Mál sem átti að vera smámál og hefði ekki þurft að hafa neinar afleiðingar fyrir hann er allt í einu orðið að stórmáli. Allt öðru máli.
Ef ég á að segja alveg eins og er - þá finnst mér þetta frekar sorglegt allt saman.
Steindór J. Erlingsson - 20/01/11 19:56 #
Gætirðu sagt meira um stöðu málsins? Ég er forvitinn!
Matti - 20/01/11 20:04 #
Það sem ég get sagt er að mál sem hefði mátt leysa með afsökunarbeiðni og leiðréttingu stefnir í að verða lögreglumál gegn þessum manni og helstu "aðstoðarmönnum" hans í málinu. Sennilega verður lögmaður hans einnig kærður til siðanefndar lögmannafélagsins.
Ef hann og kollegar hans hefðu ekki svona gríðarlega fordóma gegn okkur (í alvöru talað, þau líta á okkur sem fullkomlega siðlaust pakk og taka því ekki mark á nokkru sem frá okkur kemur) hefðu þau séð að það var eitthvað að marka kvörtun okkar - hún var málefnaleg og það hefði verið sanngjarnt að taka undir með okkur. Þetta var aldrei stórmál.
Steindór J. Erlingsson - 20/01/11 20:17 #
Ég man eftir umfjöllun um málið á vefnum ykkar. Málflutningur umrædds kennara um Vantrú í námskeiði við HÍ, þar sem kenna á nemendum hlutlæg vinnubrögð, var til háborinnar skammar.
Steindór J. Erlingsson - 20/01/11 20:42 #
Það kemur mér ekki á óvart að þessir einstaklingar hafi fordóma gegn ykkur. Þeir eru jú að mennta fulltrúa (ímyndaðs) guðs á okkar "bersyndugu" jörð, sem eftir vígslu biskup telja sig m.a. geta vígt vatn í nafni þessa guðs. Ef þú spáir í það þá hljóta sumir þessa einstaklinga að hafa snert af mikilmennskubrjálæði!
Þórður Ingvarsson - 20/01/11 20:53 #
Þeir hafa allavega snert af einhverju brjálæði enda virðist menntunin í þessu kukli vera eintóm vitfirra.
Ásgeir - 20/01/11 21:26 #
Hér er bara komið fullt af efni í næstu skýrslu.
Þórður Ingvarsson - 20/01/11 21:33 #
Já, kannski komin tími á aðra akademíska blessun og kveðju fyrir fræðimenn með fúkyrðaflaumsblæti?
Hún verður hugsanlega jafnvísindaleg og sú fyrri. Þ.e. að ég óska eftir frumlegum fúkyrðum á flettismettinu og púsla svo saman setningu sem meikar ekkert sens.
Ásgeir - 20/01/11 21:44 #
Það ætti kannski ekki að fóðra tröllin, þó þau séu að reyna að vera akademísk.
Þórður Ingvarsson - 20/01/11 21:49 #
Í þessu sérstaka tilfelli sem verið er að ræða hér þá virðist ekkert skipta máli hvað maður skrifar eða segir. Orð eru til alls fyrst, eða eitthvað. En samhengið, það getur fokkað sér í þessum tilteknu fræðum.
Ásgeir - 20/01/11 21:52 #
Tröll og aðra vætti.
Þórður Ingvarsson - 20/01/11 21:54 #
Dreka og kýklópa?
Ásgeir - 20/01/11 21:54 #
Ég sá allt í einu fyrir mér setningu í skýrslu: „20. janúar 2011: X kallaður tröll í athugasemdakerfi“.
Þórður Ingvarsson - 20/01/11 22:00 #
Hljómar einsog spennandi skýrsla!
20. janúar 2011 kl 21:44 "Ásgeir sakar X um að vera tröll."
20. janúar 2011 kl 21:49 "Þórður Ingvarsson segir X að fokka sér"
20. janúar 2011 kl 21:50 "Matthías Ásgeirsson ber við skyndilegt minnisleysi."
Reynir - 20/01/11 23:04 #
Einelti, ofbeldi, gyðingaofsóknir!
Almáttugur, hvað hefur Vantrú gert nú? Glóðirnar hrannast að höfðum okkar. Ó, mig auman.
Hvað verður nú um siðinn og allsherjarregluna... eða valdstjórnina?
Speki dagsins: Nú fá sumir hland fyrir hjartað.
Óli Gneisti - 21/01/11 21:11 #
Ég held að góðir vinir séu ekki þeir sem fara með þér til heljar af því að þú telur að það sé nauðsynlegt heldur þeir sem benda þér á að það sé til betri leið. Þeir etja þér ekki áfram í tapaðan bardaga.
Hafþór Örn - 22/01/11 08:37 #
Vinur er sá er til vamms segir.
Matti - 22/01/11 19:54 #
Spáum í eitthvað allt annað. Út á hvað gengur fræðimennska?