Örvitinn

Áfram, Kristsmenn, krossmenn

Áfram, Kristsmenn, krossmenn,
kóngsmenn erum vér.
Fram í stríðið stefnið, sterki æskuher.

Kristur er hinn krýndi kóngur vor á leið.
Sjáið fagra fánann frelsis blakta' á meið.

Kór: Áfram, Kristsmenn, krossmenn,
kóngsmenn erum vér.
Fram í stríðið stefnið, sterki æskuher.

Gjörvöll Kristí kirkja kveður oss með sér,
fjendur ótal eru, ei þó hræðast ber.
Konungsstólar steypast, stendur kirkjan föst,
bifast ei á bjargi byggð, þótt dynji röst.

Komið, allar álfur, allra þjóða menn.
Veitið oss að vígi, vinna munum senn.
Allar englatungur undir taki' í söng:
Dýrð og lof sé Drottni, dýrð í sæld og þröng. #

Munið svo börnin góð að kristin trú er forsenda góðs siðferðis. Án kristinnar trúar er hætt við því að siðgæði þjóðarinnar fari til andskotans, siðfræði var ekki til á undan Guði og Ísland er kristin þjóð, . Munið einnið að maður sem skilur ekki kynferði sitt verður alltaf trúleysingi.

ps. Á Alþingi er svona fólk

dylgjublogg kristni
Athugasemdir

Helgi Þór Gunnarsson - 25/11/10 20:25 #

Það er dálítið kaldhæðnislegt að lesa þessi orð Jónínu í dag:

"Þú villt sönnun þess að barnaníðingar séu trúlausir. Mér finnst þú vanvirða mig með þessari bón því auðveldara verkefni hef ég nú ekki fengið síðan ég dró andann í fyrsta sinn, nýfædd."

hildigunnur - 26/11/10 08:29 #

SKAMM! ég er búin að hafa þetta lag á heilanum síðan í gærkvöldi!

:<

Matti - 26/11/10 09:44 #

Úbbs :-)