Örvitinn og Ofvitinn
Eins og fram kemur í sunnudagsmogganum hef ég verið að lesa Ofvitann. Ég lýg því reyndar í blaðinu að ég hafi klárað bókina, geri það á eftir. Aldrei lýgur Mogginn!
Um daginn var rætt við mig í Morgunblaðinu útaf framkvæmdum sem er að ljúka á húsinu mínu (smotterí eftir). Ég fer bráðum að teljast fastagestur. Þarf að senda lesendagrein bráðlega svo ég gleymist ekki.
En hvað er málið með Fréttablaðið?
Athugasemdir
Matti - 31/07/10 15:38 #
Nú lýgur Mogginn ekki lengur!