Að smala köttum
Síðan hvenær hefur þessi samlíking verið óviðeigandi? Mér finnst hún frekar góð.
Hún hefur verið notuð um trúleysingja í nokkurn tíma og mér hefur ekki þótt ástæða til að pirrast á því. Þetta þýðir bara að hópurinn samanstendur af einstaklingum með ólíkar skoðanir á mörgum málum.
Henrý Þór - 29/03/10 10:15 #
Ætli Jón Baldvin hafi gefið Jóhönnu sjálfri þessa einkunn á sínum tímum Viðeyjarstjórnar? ;)
Annars held ég að það sé ekki einkunnin sjálf sem VG blöskrar, heldur það að hún hafi yfir höfuð verið að gefa einkunnir. Samfó hefur verið duglegt að taka farþegasætið í gegnum mestu mótvindana.
Valdimar - 29/03/10 19:33 #
Mér hefur alltaf fundist hún jákvæð að því leyti að hún undirstrikar sjálfstæða hugsun trúleysingja.
En það er kannski hægt að skilja hana svo að við séum öll alveg ofsalega ósamvinnuþýð og ófélagslynd :?
Jón Hallur Haraldsson - 31/03/10 13:35 #
Svona veseni lenti Davíð aldrei í, hann smalaði bara sauðum.