Ekkert kjötborð á suðurlandi
Fórum í bústað á föstudag og komum heim í dag. Ekki í Borgarfirði í þetta skipti heldur vorum við í Selvík. Vorum með tengdaforeldrum mínum, sem leigðu bústaðinn, um helgina. Vorum svo ein eina nótt. Foreldrar mínir komu í heimsókn í gær og gistu.
Gerðum svosem ekki mikið enda veður frekar leiðinlegt, rigning allan tímann. Ég gat ekki róið útaf meiðslum en stelpurnar fóru einu sinni á vatnið með afa sínum. Spiluðum minigólf og pool. Í gær fórum við smá rúnt á Geysi. Borðuðum þokkalegan mat á hótelinu en hamborgarinn var þó ekki jafn merkilegur og halda mætti af matseðlinum.
Ég komst að því að það er ekkert kjötborð á suðurlandi, a.m.k. ekki í Selfossi og Hveragerði Mér finnst dálítið lélegt að geta ekki fengið almennilegt kjöt í landbúnaðarhéraðinu. Úrvalið í Krónunni er þó töluvert betra en í Bónus. Bændur á svæðinu mættu gjarnan sýna lit og bjóða upp á úrvalskjöt, nóg er af túristum og sumarbústaðagengi í nágrenninu.
Ég dundaði mér við að lesa Hrunið en kláraði ekki, kenni Civ4 um það Áhugavert bók.
Sirrý - 23/06/09 21:27 #
Ég fékk einhvað svona ferðablað um daginn og þar var merkt inn á bændur sem selja beint frá býli og það var eitthvað á suðurlandi en man ekki hvar.
Ætlaði alltaf að benda ykkur á að við vorum þarna á Hraunsnefi um daginn ekkert langt frá ykkar bústað en samt aðeins lengra en Hreiðarvatnsskáli þar er ágætis veitingastaður svona þar sem þið farið stundum út að borða.
sirry - 23/06/09 21:29 #
hér er listinn http://www.beintfrabyli.is/listi.html
hildigunnur - 24/06/09 10:18 #
ha, er kjötborðið í Nóatúni á Selfossi hætt (eða verra, er búið að leggja niður Nóatúnsverslunina á Selfossi?) :o
hildigunnur - 25/06/09 20:08 #
muuu :(