Sprungið og Gló
Það sprakk á afturdekkinu hjá mér í morgun. Ég var eitthvað að asnast við að fara upp á gangstétt þar sem kanturinn var hár. Var sem betur fer ekkert mjög langt frá vinnunni. Gyða kom svo áðan og við skutluðum hjólinu í Örninn. Ég sæki það seinnipartinn og hjóla heim.
Fyrst Gyða var mætt fórum við út að borða í hádeginu. Kíktum á Gló þar sem við fengum kókoskarrýkjúkling og salat. Afskaplega góður matur og hressandi að borða úti í góða veðrinu.