Konudagurinn og öskudagsbúningar
Allar stelpurnar á þessu heimili fengu rós í tilefni dagsins, stærsta stelpan fékk nokkrar.
Byrjuðum daginn á því að sækja stelpurnar í Hafnafjörð. Þar fengum við kjötbollur og spagettí, rjómabollur í desert.
Fórum því næst í bæinn til að redda öskudagsbúningum. Systir mín var búin að hræða okkur með því að búningar væru uppseldir í Toys are us og Hagkaup. Við fórum í Partýbúðina þar sem allt var fullt af búningum á þokkalegu verði. Inga María valdi sér sjóræningjabúning og sverð, Kolla er aftur á móti í ljósbláum gellubúning með hatt í stíl.
Ég glápti svo á fótboltaleik og varð fyrir vonbrigðum.
Kom við í blómabúð á heimleiðinni.