Athugasemdir ársins
Hér eru þær bloggfærslur sem flestar athugasemdir hafa verið gerðar við á árinu.
- Nokkur valin orð frá Helgu Guðrúnu Eiríksdóttur (31)
- Jæja já (23)
- Þórbergur um séra Örn Bárð (22)
- Dómarinn (21)
- Borgaraleg gildi (17)
- Aular vikunnar (16)
- Fulla tunglið hans Geirs Jóns (16)
- Þulukrossinn, DV og Bítið (16)
- Blaðraði í Menntaskólum í Reykjavík (15)
Þetta er nú frekar slappt. Flestir mogglingar hlæja að svona tölum en þar sjást oft hundrað athugasemdir við bloggfærslur. Lesendur eru ekki að standa sig í stykkinu, sýnist ég þurfa að skipta um lesendur.
Ég man ekki eftir neinni tiltekinni athugasemd sem var merkileg, ætla að kíkja á málið. Blogga kannski um það eftir korter (þarf annars að fara að koma mér heim).
Matti - 31/12/08 13:36 #
Athugasemd ársins er fundin. Hana skrifaði marco og hún hljóðar svona:
Vá, hvað þú ert Anal!! #
Athugasemdin er stutt en um leið margræð. marco kemst beint að kjarna málsins og í athugasemd ársins leynast ótal sannleikskorn. Þetta er nútímaleg athugasemd, heimspekilegt ljóð og frábær gagnrýni á þann sem hér ritar.
Erna Magnúsdóttir - 31/12/08 13:38 #
Er Helga búin að borga?
Á - 31/12/08 14:23 #
Þessar 100 athugasemdir á Moggablogginu eru nú sjaldnast mikils virði.