Hamstrað í Bónus
Ég verslaði í Bónus í kvöld. Keypti meðal annars:
- Níu frosna kjúklinga
- Átta stórar dósir af kotasælu
- sextán dósir af tómötum í dós
- Átta pakka af tortillas
Keypti svo sitthvað fleira. Fannst fólk horfa dálítið á körfuna en kannski var það bara vænisýki í mér.
Ég var reyndar ekki að hamstra mat fyrir heimilið heldur að versla fyrir matarboð sem við verðum með á laugardag.
Það var ekkert mjög mikið að gera í Bónus í Holtagörðum eftir sex í kvöld og ekki varð ég var við að það vantaði vörur í hillur. Grænmetið var reyndar meira og minna ónýtt en það er frekar algengt í Bónus.
Athugasemdir
Kata - 14/10/08 23:21 #
Mér sýnist á innkaupunum að þú ætlir að elda enchiladas? Er það rétt til getið hjá mér?