Kaldidalur
Ókum dálítið langa leið í bústað í gær. Byrjuðum á Eyrarbakka þar sem ég kíkti á sýninguna hans Sigurjóns. Ég hafði séð myndirnar á síðunni hans en þær koma rosalega vel út á stóru prenti. Hitti Sigurjón og hann fór í gegnum sýninguna með mér. Ég mæli með því að þið kíkið á þetta.
Borðuðum nesti rétt hjá Þingvallavatni og ókum svo Kaldadal að Húsafelli, borðuðum kvöldmat á Reykholti og vorum komin í bústað rétt rúmlega tíu. Hér er Prestahnúkur.
Athugasemdir