Kominn af veikindavakt
Tengdamóðir mín leysti mig af í hádeginu og ég er kominn í vinnuna. Kolla var ansi slöpp, ældi öllu sem hún innbyrti og reyndi að sofa þess á milli. Horfði samt á eina mynd. Verður vonandi búin að jafna sig í kvöld.
Hér erum við feðgin í sófanum í morgun. Viljandi blurruð og úr fókus*.
*Ég var að taka myndir með ljósopið 1.4 og manual fókus en náði samt tveimur myndum í fínum fókus. Þessi var bara miklu betri.