Örvitinn

Veikindavaktin

Kolla er veik. Var óglatt í morgun og nú sefur hún í sófanum með lítinn bala í fanginu. Ég verð á veikindavaktinni til að byrja með - kemur í ljós hvort ég fæ einhvern til að leysa mig af.

Sumarveikindi eru eitthvað svo svekkjandi. Nú ætti Kolla að vera að fara að skoða flugvélar með Frissa fríska en í staðinn hangir hún heima óskaplega slöpp.

09:55
Hún ældi loks um hálf tíu og steinsefur nú í sófanum

fjölskyldan
Athugasemdir

Eyja - 24/06/08 14:08 #

Það var ælt yfir rúmið okkar um tvöleytið í nótt, þ.e. yngsta dóttirin sá um það. Hún fékk að sofa fram eftir og vaknaði svo nógu hress til að skella sér í leikskólann. Vonandi verður þetta jafn skammvinnt hjá ykkur.

Matti - 24/06/08 20:42 #

Því miður er þetta ekki svo skammvinnt, Kolla er enn ælandi.