Fjör í Egilshöll
Kolla og Inga María spiluð á Reykjavíkurmóti í Egilshöll í dag milli eitt og fjögur. Stóðu sig vel og Inga María fékkst meira að segja til að hlaupa á eftir boltanum. A-liðið sem Kolla var í vann alla sína leiki sannfærandi. Með henni í liði eru nokkrar afar góðar stúlkur, sérstaklega ein sem var bara færð í vörnina þegar ÍR var að vinna of stórt. B-lið Ingu Maríu vann þrjá af fjórum leikjum.
Ég tók eitthvað af myndum. Hef svosem sagt það áður, en það er afskaplega dimmt í Egilshöll. Hvenær ætlar einhver almennilegur náungi að gefa mér Nikon D3?
Komum við í sjoppunni á heimleiðinni og fengum okkur Shake, Ingu Maríu var mútað til að hlaupa og einbeita sér að fótboltanum!