Eldsneytisáfylling fyrir níuþúsund krónur
Ég man þá gömlu góðu daga þegar mér fannst hrikalegt að borga fimmþúsund krónur fyrir að fylla bílinn. Síðar trúði ég því varla þegar það kostaði sexþúsund krónur.
Í kvöld fyllti ég jeppann og sá mælinn í fyrsta skipti fara yfir níuþúsund krónur. Vissulega ekki á sama bíl og í hin skiptin, en ég hef oft fyllt jeppann þegar tankurinn hefur verið nær tómur en aldrei áður náð að fara upp í þessa tölu.
Svona fylgist ég með eldsneytisverðinu. Eldsneytisverð skiptir ekki máli nema þegar ég fer yfir þúsundamörk.
Ég borgaði með seðlum. Ætlaði að borga með debetkortinu mínu en það er útrunnið!
Ég mun ekki blogga um eldsneytisverð aftur fyrr en það kostar mig tíu þúsund krónur að fylla á tankinn. Þá er spurningin bara hvort það verði snemma eða seint á árinu.