Örvitinn

Húmorsleysi

Hvernig er hægt að svara ásökunum um húmorsleysi? Er þetta ekki álíka gáfuleg gagnrýni og að segja að einhver sé ljótur?

Ég meina, þú svarar þessu ekki - ekki einu sinni með því að vísa á tilraunir þínar til að vera fyndinn og skemmtilegur. Sá sem heldur því fram að þú sért húmorslaus gerir það ekki á rökrænum forsendum heldur vegna þess að honum finnst það.

Merkilegast að það er yfirleitt ótrúlega ófyndið og leiðinlegt fólk sem setur eitthvað þessu líkt fram.

Ég vildi að ég gæti sagt eitthvað fyndi um þetta, en ég get það ekki :-)

dylgjublogg
Athugasemdir

Kalli - 13/12/07 23:38 #

Ég er svo húmorslaus að ég fór bara að pirrast yfir ljótum texta í þessu tilfelli sem mig grunar að þú sért að tala um :p

Jón Yngvi - 14/12/07 13:18 #

Mér finnst nú sumir trúarbloggarar miklu fyndnari en þú Matti - en það er ekki endilega vegna þess að þeir hafi húmor.

Matti - 14/12/07 14:26 #

Þar er ég sammála þér :-)