Jæja, heilsan
Í gærkvöldi drakk ég síðasta bjórinn í ísskápnum. Grillaði þokkalega máltíð. Svo kláraði fjölskyldan ísinn sem við áttum.
Í morgun hjólaði ég í vinnuna.
Er þetta ekki ágætis dagur til að byrja að gera eitthvað í málunum?
Athugasemdir
Teitur Atlason - 16/07/07 23:29 #
Hví förum við ekki í prufutíma hjá Mjölni? þar kljást menn og læra hin ýmsustu bardaga-brögð... Ég þarf að taka mig í gegn og langar að prufa hitt og þetta....
-ertu ekki annars ágætur?