Tekíla og tabaskó
Fórum út að borða á Austur Indíafjelaginu í gærkvöldi með góðu fólki. Mikið óskaplega finnst mér gaman að borða á þessum stað. Við fengum okkur að sjálfsögðu lambakjöt sem hafði verið marinerað í mangó mauki. Það var æði, en ég veit ekki alveg hvort það stóðst væntingar, okkur hefur dreymt þennan rétt síðan við fengum hann síðast fyrir mörgum árum.
Kíktum aðeins á Ölstofuna og þar fékk ég meðal annars magnað staup sem samanstóð af tekíla og tabaskó. Mér fannst það snilld en Einar og Eiki voru ekki jafn hrifnir.