Mér er kalt
Hita fylgir kuldi, þ.e.a.s. þegar maður er með hita verður stundum drullukalt. Nú er mér afskaplega kalt, síðasta munnmæling sýnd 38.7°
Ég er orðinn dálítið þreyttur á þessu. Hef hingað til lítið verið veikur en þetta er önnur pestin sem ég fæ þennan vetur.
Kolla sleppir fótboltaæfingu í dag, við getum ekki skutlað henni. Það raskar öllu þegar báðir foreldrar eru veikir.
En ég bíð eftir Meistaradeildinni.
18:30
Svo fær maður sér eina íbúfen og hálftíma síðar er maður farinn að svitna, líkamshitinn rýkur niður og manni er alltof heitt.
Athugasemdir
sirrý - 22/02/07 07:56 #
Hvernig er heilsan á bænum í dag ??