Kolla veik
Kolla er veik. Var afar slöpp í gær þegar Gyða sótti hana í heilsdagsvistunina. Var með 38° í gærkvöldi og rúmlega það í nótt. Hún fór snemma að sofa en rölti svo hingað niður um ellefu í gærkvöldi. Um eitt í nótt ældi hún dálítið hressilega, en hafði stjórn á öllu og allt rataði í bala og klósett.
Var með rétt tæplega 38° stiga hita í morgun.
Breytir dálítið plönum hjá okkur, stelpurnar ætluðu í bústað með ömmu og afa og við foreldrarnir í matarklúbb. Líklegast kemur Gunna hingað og passar stelpurnar meðan við skreppum í matarboðið.
13:40
Kolla er hress, borðaði ristað brauð og drekkur sprite. Þetta er vonandi liðið hjá.