Hvað gerist í skólagæslunni í dag?
Það verður forvitnilegt að sækja Kollu í dag og fá skýrslu.
Á dagskrá frístundarstarfsins, sem hún fer í eftir skóla, er heimsókn í Seljakirkju. Ég merkti við að ég vildi ekki að hún tæki þátt í slíku starfi þegar ég skráði hana.
Í dag kemur í ljós hvort hún fer þrátt fyrir það, hvort hún verður eina barnið sem ekki fer og hvort það verður almennileg dagskrá fyrir þau börn sem ekki fara í kirkju.
Ég ræddi þetta við hana um daginn og henni finnst þetta ekkert mál. Ég er samt dálítið stressaður fyrir hennar hönd.