Eyrnaverkir
Ég er með verki í eyrum. Búinn að taka tvær verkjatöflur í dag, þær duga skammt.
Nenni ekki að kíkja til heimilislæknis. Hann myndi segja mér að ég væri með verki í eyrum! Í raun hefur þetta varað í nokkurn tíma, því ég fann fyrir þessu í veikindunum í síðustu viku og hef fundið fyrir óþægindum af og til síðustu vikur.
Árans vesen.
Athugasemdir
Björn Friðgeir - 12/09/06 10:17 #
Ef þetta er innan í eyra er rétt að láta líta á. Þú gætir verið með eyrnabólgu sem ef hún grasserar of lengi gæti skaddað heyrn. Just sayin'.