Asnar asnast asnalega
Það kemur mér alltaf á óvart þegar fólk sem ég taldi "þokkalegt" reynist bölvaðir asnar.
Aftur á móti eru aðrir alltaf sömu asnarnir og koma ekkert á óvart.
Ætli þetta sé eitthvað sérstakt markmið? Hmm, kannski rætt á póstlistanum - hver getur verið mesti asninn? Það væri þó skýring á þessum asnalátum.
Jæja, ég nenni ekki að velta mér upp úr því. Það væri asnalegt. Í staðin skrifa ég bara dylgjublogg, það gerum við asnarnir alltaf.