Kartöflur komnar á grillið
Jæja, bökunarkartöflurnar komnar á grillið. Setti þær á plötuna, lítinn hita þar undir en mikinn á hinum helming grillsins. Engan álpappír, bara olíu og salt.
Gyða keypti forkryddað (já ég veit, skamm) lambakjöt og pylsur, skelli því á grillið á eftir.
Bárum gamla grillið út í garð, ætla að reyna að láta það ekki standa þar lengi heldur koma því á Sorpu sem fyrst. Ef einhverjum langar í grill sem þarf að hreinsa og skipta um brennara í má hann sækja grillið hjá mér. Ágætt grill ef það er gert upp. Ég efast um að margir keppist um það :-)