Hvítasunnudagur
Í dag er einn af þessum stolnu hátíðisdögum kristinnar trúar. Ég er í vinnunni að rembast við að gera eitthvað gáfulegt, get ekki sagt að það gerist mikið þessa stundina.
Ég er samt búinn að ákveða að taka mér frí. Ætla að hætta í vinnunni klukkan sex og bruna í bústað (hér myndi ég þurfa að segja stelpunum mínum að ég ætla samt að keyra varlega).