DNS vesen (ADSL símans)
Þessa stundina get ég ekki tengst DNS þjónunum sem vista upplýsingar um þennan server. Ég næ ekki að fletta upp joker.com en það virðist virka annars staðar. Þar sem ip-tölur fyrir gmaki og orvitinn eru vistaðar á DNS þjóni joker get ég ekki tengst heiman nema með því að skrá upplýsingar í etc/hosts. Samkvæmt loggum hefur enginn kíkt á serverinn minn frá adsl símans síðan rétt rúmlega 11 í gærkvöldi en það gæti svosem verið tilviljun. það er hægt að tengjast joker og síðunni minni frá öðrum stöðum, þannig að ég geri ráð fyrir að hér hafi eitthvað farið úrskeiðis tengt þeim DNS server sem adsl notendur símans nota.
það er spurning hvort ég færi ekki DNS hýsinguna yfir á DNS þjón vinnunnar, en joker hefur virkað vel hingað til og ég sé ekki betur en að þetta sé að klikka hjá símanum.
10:15
Reyndar tók ansi langan tíma að tengjast joker frá vinnunni, þannig að þetta virðist ekki bara bundið við adsl símans.
10:26
Skýringin komin. dns þjónar joker urðu fyrir netárás.
Joker.com currently experiences massive distributed denial of service attacks against nameservers. This affects DNS resolution of Joker.com itself, and also domains which make use of Joker.com nameservers. We are very sorry for this issue, but we are working hard for a permanent solution. Thank you for your understanding,