Helgarskýrslan
Þetta var nokkuð róleg helgi. Kvenfélagsfundi var frestað til næsta föstudags svo Eiki geti sýnt sig, þannig að ekkert fór ég út á lífið, sem er ágætt. Næsta helgi verður nokkuð strembin í staðin, kvenfélagsfundur á föstudag og svo jólahlaðborð á laugardag þar sem ég og Jón Magnús höfum tekið að okkur að elda kalkúna.
Kíkti í bæinn í gærdag með Áróru og Kollu, röltum aðeins um Kolaportið þar sem ég rakst á mjög gott eintak af Blekking og Þekking sem ég keypti fyrir fimmtánhundruð krónur. Átti eintak fyrir þannig að ég kom þessu í góðar hendur.
Í dag fór ég með Kollu og Ingu Maríu í bæinn til að verða vitni að því þegar kveikt var á jólatrénu. Þetta var ágætt þó dagskrá byrjaði frekar rólega. Lúðrasveit fyrsta hálftímann, svo kór áður en kveikt var á trénu, eftir það byrjaði dagskrá fyrir börnin sem stelpunum fannst skemmtileg. Hittum foreldra mína sem voru með Ásdísi Birtu í bænum. Ég tók myndir. Reyndar er óskaplega dimmt núna í skammdeginu, erfitt að taka myndir. Batteríin í flassinu tæmdust svo á versta tíma, þarf að vera með tvöfaldan umgang af hleðslubatteríum.
Slepptum fjölskyldusunnudagsmatnum, ég keypti tilbúnar kjötbollur frá goða, pastasósu og spagettí. Það var fínt.
Enginn kommentar á kúlumyndirnar, hvað er að ykkur? :-)