Örvitinn

Inga María fjögurra ára

Inga María er fjögurra ára í dag. Ég og Kolla vöktum hana með afmælissöng. Fengum okkur morgunmat heima og vorum mætt klukkan níu í leikskólann. Inga María er nokkuð hress, hóstar aðeins en er hitalaus. Var mjög spennt að fara með ísinn í leikskólann.

Förum út að borða í kvöld, Inga María fær að velja staðinn. Kolla hefur verið að sannfæra systur sína um að velja McDonalds en við getum vonandi snúið því yfir í American Style eða eitthvað álíka.

Ég tók mynd af henni í morgun.

Inga María Matthíasdóttir á fjögurra ára afmælisdaginn

fjölskyldan
Athugasemdir

Sirrý - 16/11/05 14:36 #

Til hamingju með stelpuna. Mér finnst svo leðinlegt að hafa gleymt afmælisveislunni á laugardaginn. Vona að hún eigi góðan afmælisdag.