Morgunhugvekja
Ég kemst ekki yfir það hvað mér finnst það magnaður árangur að fara á fætur klukkan hálf sjö og drullast í ræktina. Alltaf langar mig jafn óskaplega mikið að sofa lengur þegar klukkan glymur.
Mér finnst pirrandi* að mæta fólki sem er að koma úr ræktinni þegar ég mæti, er það að gera lítið úr mér :-)
*Það pirrar mig ekki neitt.
Athugasemdir
Björn Friðgeir - 08/11/05 18:44 #
Það pirrar mig að fara úr ræktinni milli 7 og hálfátta, hafandi mætt 6, og mæta mönnum sem finnst þeir vera að mæta æðislega snemma.*
* Sjá þína fótnótu...
:-D