Þunnur
Kvaddi bankann í gær. Boðið var upp á öl af því tilefni, fyrsti bjór drukkinn hlukkan hálf fimm og svo setið að sumbli til átta. Ekki hægt að segja annað en það hafi verið stórgaman að hætta! Fékk tvær bækur í gjöf frá samstarfsmönnum, eina ferðabók um Ítalíu og ljósmyndabók. Er að fletta ljósmyndabókinni.
Fór í bæinn og hitti Vantrúarlið á Horninu. Fékk grænmetisrisottó sem var nokkuð gott. Svo var skrafað og drukkið fram á nótt.
Það er ekki laust við að ég sé frekar slappur þessa stundina.