Ruglaður
Er að horfa á Chelsea - Barcelona ruglað á Sýn. Ekki sakna ég lýsingar og maður getur alveg horft á leiki svona í hallæri. Áfram Barcelona, eitt mark í viðbót. Þarna kom það, djöfulsins snilld var þetta. (Glöggir lesendur sjá kannski að mér líka ekkert sérlega vel við þetta Chelsea lið)
Fór í Sporthúsið í hádeginu og sagði upp áskriftinni. Keypti árskort á sínum tíma en las smáa letrið ekki nógu vel. Eftir árið halda þeir nefnilega áfram að taka af kortinu nema maður segi upp skriflega. Ætla að kaupa árskort á öðrum stað bráðlega og stefni á að mæta þangað reglulega. Gerist samt ekki alveg strax, tengist öðrum breytingum.
Bíð enn eftir pakkanum mínum, óskaplega tekur þetta langan tíma :-|
21:35
Andskotinn, Chelsea áfram og Lampard fótbrotnaði ekki :-(